Bilic rekinn frá Watford - Chris Wilder tekinn við (Staðfest)

Championship félag Watford er búið að reka Slaven Bilic eftir tæpa sex mánuði í þjálfarastarfinu og hefur Chris Wilder verið ráðinn inn í staðinn.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25186 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Championship félag Watford er búið að reka Slaven Bilic eftir tæpa sex mánuði í þjálfarastarfinu og hefur Chris Wilder verið ráðinn inn í staðinn.

Nicky Evrard, landsliðsmarkvörður Belgíu, hefur gert samkomulag við Chelsea um að ganga í raðir félagsins í sumar en félagaskiptin voru tilkynnt í gær.
Haukar hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil en Ana Bral er komin til félagsins frá Fram.
Akil DeFreitas er genginn til liðs við KF frá Reyni Sandgerði en þetta kom fram í tilkynningu KF í gær.
Varnarmaðurinn Samúel Már Kristinsson hefur fengið félagaskipti úr KV í Fjölni. Samúel er 22 ára og er uppalinn KR-ingur. Hann er í námi í Bandaríkjunum og spilar fyrir Old Dominion í háskólaboltanum.
Sjúkraþjálfarinn Friðrik Ellert Jónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest.
Vopnfirðingurinn, Heiðar Snær Ragnarsson, er mættur aftur til KFA frá Njarðvík en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Vestri tilkynnti í kvöld nýjan leikmann en félagið hefur gengið frá samningum við senegalska miðjumanninn Ibrahima Balde.
Bergdís Fanney Einarsdóttir er gengin í raðir Fylkis frá KR en hún skrifaði undir samning til 2024. Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnti þetta í dag.
Moises Caicedo, miðjumaður Brighton á Englandi, framlengdi í dag samning sinn við félagið til 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brighton.
Nýliðar HK í Bestu deildinni hafa fengið sýrlenskan miðvörð í sínar raðir því Ahmad Faqa er kominn með leikheimild með liðinu. Hann kemur á láni frá sænska félaginu AIK. Hann er uppalinn hjá AIK og var á láni hjá Västerås fyrri hluta síðasta tímabils og Sandvikens seinni hlutann.
Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir tilkynnti með færslu á Instagram að hún væri búinn að leggja skóna og hanskana á hilluna. Sandra segir ákvörðunina eina sá erfiðustu sem hún hafi tekið en að sama skapi væri ákvörðunin góð. Sandra er 36 ára gömul og hefur verið aðalmarkvörður landsliðsins undanfarin fjögur ár. Alls á hún að baki 49 landsleiki, hefur farið með landsliðinu á fjögur stórmót en það var ekki fyrr en síðasta sumar sem hún spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti. Hún stóð sig vel á EM og var á síðasta ári í 6. sæti í kosningu um íþróttamann ársins.

Grindavík er búið að krækja í bandaríska framherjann Jada Colbert og mun hún leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Fram hefur komist að samkomulagi við Westchester United, unglingaakademíu í New York fylki í Bandaríkjunum, um að Karen Dögg Hallgrímsdóttir keppi með liðinu á Viareggio Cup sem fer fram á Ítalíu.

KR er búið að staðfesta félagsskipti Jovana Milinkovic í Vesturbæinn úr röðum Sindra.

Brasilíski táningurinn Andrey Santos er orðinn leikmaður Chelsea en fær ekki atvinnuleyfi á Englandi.

Knattspyrnufélagið Árbær byrjaði göngu sína í íslenska deildakerfinu með látum í fyrra og flaug beint upp úr 4. deildinni.
Norska félagið Ham-Kam, eða Hamarkameratene, hefur staðfest kaup sín á miðverðinum Brynjari Inga Bjarnasyni. Brynjar kemur til félagsins frá Vålerenga en bæði félög eru í efstu deild í Noregi. Brynjar gekk í raðir Vålerenga fyrir síðasta tímabil en skrifar nú undir þriggja ára samning við Ham-Kam. Tímabilið í fyrra fór ekki nægilega vel hjá Brynjari en nú er hann kominn í nýtt lið og annað umhverfi.
Grótta tilkynnti í dag að Margrét Lea Gísladóttir hefði skrifað undir samning við félagið. Hún er fædd árið 2005, er uppalin hjá Breiðabliki og kemur á láni til Gróttu út tímabilið 2023. Hún lék tímabilin 2020 og 2021 með Augnabliki en varð fyrir því óláni að slíta krossbandi fyrir rúmu ári síðan og spilaði því ekki á síðasta tímabili. Hún á að baki sex leiki með U16 og U17 landsliðum Íslands.
Kári hefur verið að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Ellefu leikmenn sem fæddir eru á árunum 2001-2006 hafa fengið félagaskipti til Kára og þá hafa tveir eldri leikmenn snúið aftur heim á Akranes. Það eru þeir Sverrir Mar Smárason, þáttarstjórnandi Ástríðunnar, og Marinó Hilmar Ásgeirsson. Sverrir kemur eftir tvö ár hjá ÍH og Marinó kemur eftir eitt tímabil með Kórdrengjum. „Sverrir sem er á 28 aldursári hefur spilað samtals 105 deildarleiki á vegum KSÍ og það allt frá 1. deild til 4. deildar, en af þessum 105 deildarleikjum hefur hann spilað 80 leiki fyrir Kára. Sverrir hefur mikla og góða reynslu og mun passa vel inn í góða blöndu Kára af ungum efnilegum leikmönnum og eldri og reyndari leikmönnum," segir í tilkynningu Kára um komu Sverris.