Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 09. júlí 2018 16:30
Elvar Geir Magnússon
Myndin sem fékk stuðningsmenn West Ham til að elska Wilshere frá fyrsta degi
Wilshere hélt með West Ham í æsku og er nú kominn til félagsins.
Wilshere hélt með West Ham í æsku og er nú kominn til félagsins.
Mynd: Jack Wilshere
Í dag staðfesti West Ham þriggja ára samning við Jack Wilshere sem kemur frá Arsenal.

Wilshere er 26 ára en meiðsli hafa meðal annars komið í veg fyrir að ferill hans hafi náð þeim hæðum sem vonast var eftir.

Stuðningsmenn West Ham taka Wilshere opnum örmum, ekki síst eftir að hann birti mynd af sér sem tekin var þegar hann var krakki. Wilshere sést þar í búningi West Ham.

Þegar Wilshere var að alast upp hélt hann með West Ham.

Wilshere segir að hluti fjölskyldu sinnar haldi með West Ham og nokkrir af vinum sínum, hann sé því mjög spenntur fyrir nýjum kafla á ferlinum.



Athugasemdir
banner
banner
banner