Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   sun 31. mars 2024 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Robertson í góðu standi - „Ekki að fara taka neinar áhættur"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andy Robertson er ekki í leikmannahópi Liverpool í dag vegna meiðsla þegar liðið fær Brighton í heimsókn.


Hann meiddist lítillega á ökkla í landsliðsverkefninu á dögunum með skoska landsliðinu.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool segir að Robertson sé heill á húfi en þétt dagskrá framundan kom í veg fyrir að hann hafi spilað leikinn í dag.

„Hann fékk grænt ljóst í gær, var alveg góður en við erum ekki að fara taka neinar áhættur þar sem við eigum annan leik á fimmtudaginn. Við verðum að halda eins mörgum leikmönnum í standi og við getum á þessum tímapunkti," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner
banner