Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 31. desember 2019 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona leggur fram tilboð í leikmann Zagreb
Dani Olmo virðist vera á leið aftur til Barcelona
Dani Olmo virðist vera á leið aftur til Barcelona
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Barcelona hefur lagt fram tilboð í spænska sóknartengiliðinn Dani Olmo en Mundo Deportivo greinir frá þessu í dag.

Olmo er 21 árs gamall en hann er uppalinn hjá Barcelona. Hann yfirgaf félagið árið 2014 og samdi við Dinamo Zagreb í Króatíu.

Hann hefur verið að gera frábæra hluti hjá Dinamo en hann sýndi takta sína í Meistaradeild Evrópu í riðlakeppninni og heillaði þar stjórnarmenn Börsunga.

Samkvæmt Mundo Deportivo hefur Barcelona lagt fram tilboð í leikmanninn.

Stefnan er að fá Olmo næsta sumar en ekki er útilokað að hann gangi til liðs við Barcelona í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner