Sextándu umferð Pepsi-deildarinnar lauk í gær með tveimur leikjum. KR vann 1-0 sigur gegn Fjölni sem ekki var mjög sannfærandi og FH lagði Keflavík örugglega 2-0.
Hólmar Örn Rúnarsson var maður leiksins í sigri FH og Gunnar Þór Gunnarsson og Stefán Logi Magnússon stóðu sig mjög vel í sigri KR.
Hólmar Örn Rúnarsson var maður leiksins í sigri FH og Gunnar Þór Gunnarsson og Stefán Logi Magnússon stóðu sig mjög vel í sigri KR.
Fylkismenn sýndu frábær tilþrif í 4-1 sigri gegn Þór. Finnur Ólafsson var magnaður á miðjunni og Albert Brynjar Ingason heldur áfram að fara á kostum í appelsínugulu treyjunni og skoraði tvö mörk.
ÍBV vann gríðarlega mikilvægan og frekar óvæntan sigur á Víkingi og á tvo fulltrúa í liðinu. Eyjamenn eru í fallbaráttu og stigin þrjú afar kærkomin.
Tveir leikmenn Stjörnunnar eru í liðinu eftir sigur gegn Val og Breiðablik á tvo fulltrúa aftir að hafa tekið magnaðan lokasprett gegn Fram og unnið 3-0 sigur.
Úrvalslið 16. umferðar:
Stefán Logi Magnússon – KR
Jóhann Laxdal – Stjarnan
Andri Ólafsson – ÍBV
Gunnar Þór Gunnarsson – KR
Hólmar Örn Rúnarsson – FH
Finnur Ólafsson – Fylkir
Arnar Bragi Bergsson – ÍBV
Elfar Árni Aðalsteinsson – Breiðablik
Arnar Már Björgvinsson – Stjarnan
Albert Brynjar Ingason – Fylkir
Árni Vilhjálmsson – Breiðablik
Fyrri úrvalslið:
15. umferð
13. umferð
12. umferð
11. umferð
10. umferð
9. umferð
8. umferð
7. umferð
6. umferð
5. umferð
4. umferð
3. umferð
2. umferð
1. umferð
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir