Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   mið 18. febrúar 2015 00:56
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Chelsea ýttu blökkumanni úr lest
Myndbandið má sjá neðar í fréttinni.
Myndbandið má sjá neðar í fréttinni.
Mynd: Skjáskot
Nú um miðnætti birtu fjölmiðlar á Englandi myndband sem hefur hneykslað marga á samskiptamiðlum en myndbandið var tekið fyrir leik PSG og Chelsea í kvöld.

Þar sjást nokkrir stuðningsmenn Chelsea neita að hleypa hörundsdökkum einstaklingi inn í lest á Richelieu-Drouot lestarstöðinni í París.

Manninum er ýtt út úr lestinni og svo heyrast stuðningsmennirnir syngja um að þeir séu rasistar og ánægðir með það.

„We're racist, we're racist and that's the way we like it," er sungið. Fróðlegt verður að sjá hvort einhver eftirmál verða af þessari skammarlegu hegðun.

Myndbandið má sjá hér:


Athugasemdir
banner
banner