Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 12. ágúst 2016 00:25
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Mark ársins skorað á Akureyri?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Topplið KA átti ekki í vandræðum með botnlið Leiknis Fáskrúðsfirði í Inkasso-deildinni í kvöld.

KA vann 4-0 sigur í leiknum þar sem Serbinn Aleksandar Trninic skoraði tvívegis.

Seinna mark hans var hreint út sagt magnað en það gerði hann með ótrúlegri þrusuneglu. Það er með hreinum ólíkindum að sláin hafi staðið af sér þetta skot.

Í meðfylgjandi myndbandi frá KA-TV má sjá mörkin í kvöld en markið magnaða kemur eftir rúma mínútu.

Mark ársins í íslenska fótboltanum?



KA 4 - 0 Leiknir F.
1-0 Aleksandar Trninic ('45)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('59)
3-0 Aleksandar Trninic ('71)
4-0 Ólafur Aron Pétursson ('90)
Athugasemdir
banner
banner