Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   fös 02. febrúar 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Baldur Sig spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Baldur Sigurðsson í baráttunni.
Baldur Sigurðsson í baráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sanchez setur þrennu samkvæmt spá Baldurs.
Sanchez setur þrennu samkvæmt spá Baldurs.
Mynd: Getty Images
Liverpool rúllar Tottenham upp samkvæmt spánni.
Liverpool rúllar Tottenham upp samkvæmt spánni.
Mynd: Getty Images
Hörður Magnússon var með þrjá rétta þegar hann spáði í leikina í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku.

Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, spáir í leikina að þessu sinni. Baldur og félagar mæta Grindavík í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins í Kórnum klukkan 13:00 á morgun.



Burnley 1 - 2 Manchester City (12:30 á morgun)
Það ræður ekkert lið í deildinni við City liðið sem er með besta þjálfara í heimi.

Bournemouth 0 - 0 Stoke (15:00 á morgun)
Það er klassískt að lið eins og Bournemouth fari í ruglið eftir 3-0 útisigur á Chelsea. Þeir ná hins vegar jafntefli gegn hræðilegu Stoke liði.

Brighton 2 - 0 West Ham (15:00 á morgun)
Ég get ekki sagt neitt um þennan leik.

Leicester 3 - 1 Swansea (15:00 á morgun)
Mahrez er týndur en leikmenn Leicester þjappa sér mjög vel saman enda er hann örugglega leiðinlegur.

Manchester United 5 - 0 Huddersfield (15:00 á morgun)
Ég trúi ekki öðru en að mínir menn taki 5-0 sigur, sérstaklega af því að þeir töpuðu fyrir Huddersfield í fyrri umferðinni. Sanchez stimplar sig inn með þrennu.

WBA 0 - 1 Southampton (15:00 á morgun)
Liðin í átjánda og tuttugasta sæti. Svo lengi sem WBA er áfram í bikarnum þá held ég að þeir verði í rugli í deildinni. Þetta er útisigur.

Arsenal 3 - 3 Everton (17:30 á morgun)
Nýju mennirnir eru ekki búnir að komast nógu vel inn í hlutina hjá Arsenal. Gylfi verður með þrjár stoðsendingar.

Crystal Palace 2 - 2 Newcastle (14:15 á sunnudag)
2-2 jafntefli. Hef ekkert meira um það að segja.

Liverpool 4 - 1 Tottenham (16:30 á sunnudag)
Liverpool vinnur alltaf þessa leiki. Tottenham slátraði fyrri leiknum 4-1 og þetta snýst við núna. Sama markatala.

Watford 0 - 3 Chelsea (20:00 á mánudagskvöld)
Þetta verður solid hjá Chelsea.

Fyrri spámenn:
Gaupi (7 réttir)
Gunnar Jarl Jónsson (6 réttir)
Haukur Harðarson (6 réttir)
Haukur Páll Sigurðsson (6 réttir)
Lillý Rut Hlynsdóttir (6 réttir)
Siggi Dúlla (6 réttir)
Steindi Jr (6 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (6 réttir)
Gummi Ben (5 réttir)
Logi Bergmann (5 réttir)
Ólafur Ingi Skúlason (5 réttir)
Viðar Skjóldal - Enski (5 réttir)
Birkir Már Sævarsson (4 réttir)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (4 réttir)
Arnór Þór Gunnarsson (3 réttir)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (3 réttir)
Hallgrímur Jónasson (3 réttir)
Hjálmar Örn Jóhannsson (3 réttir)
Hörður Magnússon (3 réttir)
Ólafur Darri Ólafsson (3 réttir)
Jón Ragnar Jónsson (1 réttur)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 34 18 6 10 67 54 +13 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 Chelsea 34 14 9 11 65 59 +6 51
9 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 36 12 9 15 38 49 -11 37
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 36 6 8 22 49 78 -29 26
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner