Skagamenn færðust nær sæti í Pepsi-deildinni með 3-2 sigri gegn Magna á Grenivík um helgina. Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvívegis í þeim leik og er leikmaður umferðarinnar í Inkasso-deildinni.
HK er einnig í góðum málum eftir 1-0 sigur á Njarðvík. Brynjar Jónasson skoraði sigurmarkið og Leifur Andri Leifsson góður í vörninni. Robert Blakala í marki Njarðvíkur kom í veg fyrir að HK skoraði fleiri mörk. Blakala er í liði umferðarinnar í fimmta skipti í sumar.
Haukar stöðvuðu magnaða sigurgöngu Þróttara með góðum 2-1 útisigri í Laugardalnum. Ísak Jónsson og Aron Freyr Róbertsson eru fulltrúar Hauka í liði umferðarinnar og Kristján Ómar Björnsson, þjálfari Hauka, er þjálfari umferðarinnar.
Leiknismenn fjarlægðust fallsvæðið með mikilvægum 2-1 útisigri gegn Selfyssingum. Sólon Breki Leifsson skoraði sigurmarkið og Miroslav Pushkarov var traustur í vörninni.
Gonzalo Zamorano skoraði bæði mörk Víkings Ólafsvíkur í sigri á Þór í gær og er nú kominn með tíu mörk í Inkasso-deildinni í sumar. Sasha Litwin var einnig öflugur í þeim leik.
Már Ægisson var maður leiksins þegar Fram vann ÍR 3-2 á útivelli. Már skoraði annað mark Fram og hann er í liði umferðarinnar.
Fyrri lið umferðar
Lið 18. umferðar
Lið 17. umferðar
Lið 16. umferðar
Lið 15. umferðar
Lið 14. umferðar
Lið 13. umferðar
Lið 12. umferðar
Lið 11. umferðar
Lið 10. umferðar
Lið 9. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir