Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   sun 28. apríl 2019 15:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Leeds skoraði þegar Kodija lá meiddur - Bielsa sagði sínum mönnum að gefa mark
Kodija lá óvígur eftir
Kodija lá óvígur eftir
Mynd: Getty Images
Ótrúlegar senur urðu þegar Aston Villa heimsótti Leeds í dag.

Á 72. lá Jonathan Kodija óvígur eftir á vellinum. Leikmenn Leeds virtust ætla hætta leik og hættu Villa að pressa á þá. Leeds gaf þó óvænt í aftur og Tyler Roberts gaf boltann fyrir á Mateusz Klich sem skoraði.

Allt gjörsamlega trylltist. Villa menn eðlilega brjálaðir þar sem þeir bjuggust við því að leikurinn yrði stoppaður. Handalögmál urðu á milli manna og dómarinn endaði á því að gefa Anwar El-Ghazi beint rautt spjald.

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, sagði sínum mönnum að gefa Aston Villa mark í kjölfarið. Því fylgdu alliir nema Pontus Jansson sem meðtók ekki silaboðin. Það kom þó ekki að sök því Albert Adomah skoraði í autt markið.

John Terry, aðstoðarþjálfari Aston Villa, öskraði einhverju að Bielsa í kjölfarið.

Þessar senur má sjá hér að neðan.






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner