Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   þri 04. febrúar 2020 20:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi vill að Abidal nefni nöfn
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Josep Bartomeu, forseti Barcelona, Quique Setién og Eric Abidal.
Josep Bartomeu, forseti Barcelona, Quique Setién og Eric Abidal.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, stórstjarna Barcelona, er ekki nægilega sáttur með ummæli Eric Abidal, fyrrum liðsfélaga sína.

Abidal starfar í dag sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona. Abidal var í viðtali við Sport á Spáni þar sem hann ýjaði að því að sumir í leikmannahópi Barcelona hefðu ekki verið að standa undir væntingum undir stjórn Ernesto Valverde.

„Margir af leikmönnunum voru ósáttir og lögðu ekki mikla vinnu á sig. Það var líka vandamál með samskipti innanbúðar. Sambandið á milli þjálfarans og leikmanna var alltaf gott, en sem fyrrum leikmaður þá skynjar þú hluti," sagði Abidal.

Valverde var rekinn á dögunum og í hans stað ráðinn Quique Setién, fyrrum þjálfari Betis..

Messi var hins vegar ekki sáttur með ummæli síns fyrrum liðsfélaga. Hann segir að Abidal verði að nefna nöfn ef hann ætlar að láta svona frá sér. „Ég kann ekki vel við svona, en ég tel að allir verði að taka ábyrð á sinni vinnu og taka ábyrgð á sínum ákvörðunum," skrifaði Messi á Instagram.

„Sem leikmenn þá erum við fyrstir til að segja þegar við spilum ekki vel. Það fólk sem sér um ákvarðanirnar utan vallar þurfa líka að taka ábyrgð, og fyrst og fremst að taka stjórn þegar kemur að ákvörðunum sínum."

„Í síðasta lagi, þegar þú ert að tala um leikmenn þá skaltu nefna nöfn. Annars ertu að setja dökkan blett á nöfn allra," skrifaði Messi.

Barcelona er í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum á eftir erkifjendum sínum í Real Madrid. Börsungar unnu 2-1 sigur á Levante um síðustu helgi þar sem hinn 17 ára gamli Ansu Fati skoraði tvö eftir tvær stoðsendingar Messi.
Athugasemdir
banner
banner