Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   sun 12. nóvember 2017 20:40
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo á fæðingadeildinni - Önnur dóttir komin í heiminn
Ronaldo er orðinn fjögurra barna faðir.
Ronaldo er orðinn fjögurra barna faðir.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er orðinn fjögurra barna faðir.

Hann birti í kvöld mynd á Twitter sem tekin var á fæðingadeildinni þar sem hann tilkynnir að Alana Martina sé fædd.

Alana er fyrsta barnið sem Ronaldo eignast með kærustu sinni, Georgina Rodriguez.

Ronaldo eignaðist á dögunum tvíbura, strák og stelpu, með hjálp staðgöngumóður, en fyrir á hann Cristiano Jr., sem er sjö ára.

Ronaldo er 32 ára, leikur fyrir Real Madrid og portúgalska landsliðið, og hefur fjórum sinnum hlotið gullknöttinn sem besti leikmaður heims.



Athugasemdir
banner
banner