Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 22. ágúst 2022 20:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrsta mark Rashford í átta mánuði - „Þú ert ömurlegur Casemiro"
Rashford fagnar marki.
Rashford fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Manchester United er komið í 2-0 forystu á Old Trafford gegn erkifjendum sínum í Liverpool?

Þetta er nokkuð óvænt staða, allavega miðað við það hvernig Man Utd spilaði í fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu. Liverpool hefur líka verið að spila undir pari, en engan veginn eins og Man Utd samt sem áður.

Það var Marcus Rashford sem gerði annað mark Man Utd í leiknum, af öllum mönnum.

Hann gerði markið eftir slæm mistök hjá Jordan Henderson, fyrirliða Liverpool en þú getur séð markið með því að smella hérna.

Rashford vaknaði þarna af værum blundi; þetta er fyrsta markið sem hann skorar síðan í janúar.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ákvað að skipta Henderson af velli eftir markið. Stuðningsmenn United sungu þá: „Þú ert bara ömurlega útgáfan af Casemiro," í áttina að Henderson.

Man Utd var að ganga frá kaupum á brasilíska miðjumanninum Casemiro frá Real Madrid.


Athugasemdir
banner
banner