Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
KDA KDA
 
Alexander Freyr Tamimi
Alexander Freyr Tamimi
mið 11.sep 2013 08:00 Alexander Freyr Tamimi
Fjarlægi draumurinn sem getur orðið að veruleika Í gærkvöldi vann íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu frábæran 2-1 sigur gegn Albaníu í einum mikilvægasta landsleik sem liðið hefur spilað í háa herrans tíð. Meira »
lau 07.jan 2012 11:00 Alexander Freyr Tamimi
Um meint „hatur“ Fótbolta.net gagnvart Liverpool Sjaldan hefur eitt tiltekið mál ótengt fótbolta í ensku úrvalsdeildinni fengið jafn mikla athygli og meintir kynþáttafordómar Luis Suarez í garð Patrice Evra í viðureign Liverpool og Manchester United. Liggur nánast við að maður þurfi að fara aftur til kung-fu sparks Eric Cantona gagnvart stuðningsmanni Crystal Palace til að finna eins umdeildan atburð. Meira »
fim 30.jún 2011 12:00 Alexander Freyr Tamimi
Þjóðarstolt okkar Íslendinga í höndum KR Menn kunna að segja að ég sé að ýkja stórlega þegar ég segi að leikur KR og ÍF Fuglafjarðar í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld sé einn mikilvægasti leikur íslenskrar knattspyrnusögu, en ég segi það samt. Meira »
fös 06.maí 2011 08:30 Alexander Freyr Tamimi
Aftur gera Frakkarnir upp á bak Eins og margir knattspyrnuaðdáendur hafa tekið eftir er allt að verða vitlaust í sambandi við frétt sem birtist á frönsku íþróttasíðunni Mediapart sem birtist undir lok aprílmánaðar. Frétt þessi greindi frá því að franska knattspyrnusambandið hafi í laumi ákveðið að setja ákveðinn kvóta á svarta og norður-afríska leikmenn í franska landsliðinu. Laurent Blanc landsliðsþjálfari er sagður hafa verið með í þessum áformum sem tókst að skekja knattspyrnuheiminn í heild sinni. Meira »
mán 02.maí 2011 17:30 Alexander Freyr Tamimi
Tengsl Osama Bin Laden við fótboltann Í dag birtist skemmtilegur pistill um Osama bin Laden og tengsl hans við knattspyrnuna á vefsíðu Mirror Football og hef ég ákveðið að þýða hann ykkur lesendum til yndisauka. Meira »
fim 28.apr 2011 14:30 Alexander Freyr Tamimi
„Sérstök Þeir sem hafa gaman af fótbolta hoppuðu hæð sína af gleði þegar ljóst var að spænsku stórveldin Real Madrid og Barcelona myndu kljást hvorki meira né minna en fjórum sinnum á tæpum þremur vikum. El Clasico varð að Los Clasicos og þegar þessi grein er skrifuð er þremur af þessum fjórum leikjum lokið. Leik liðanna í deildinni lauk með 1-1 jafntefli, Madrídingar unnu spænska konungsbikarinn 1-0 og síðan unnu Börsungar 2-0 sigur í gærkvöldi í Meistaradeildinni. Meira »
mán 25.apr 2011 13:30 Alexander Freyr Tamimi
Tími fyrir alvöru stuðning Nú fer heldur betur að styttast í hið stórskemmtilega íslenska fótboltasumar og vafalaust eru margir landsmenn orðnir spenntir að sjá hvernig sínu liði mun vegna. Á kaffistofum landsins eru þegar hafnar miklar pælingar um það hverjum mun vegna vel og hverjum illa og virðast allir hafa myndað sér einhvers konar skoðun hvað varðar komandi sumar, þó þær skoðanir séu vissulega ekki allar hlutlausar. Enda mega menn alveg halda því fram að þeirra lið sé betra í ár en fyrra, eða að þetta sé árið þar sem hlutirnir muni gerast! (Innsk: Ég er Liverpool maður og ætti að þekkja þessa tilfinningu.) Meira »