Benfica fær Trubin og Cabral (Staðfest)

Portúgalska stórveldið Benfica gekk frá tveimur félagsskiptum í gær þegar félagið tilkynnti markvörðinn Anatoliy Trubin og framherjann Arthur Cabral.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25175 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Portúgalska stórveldið Benfica gekk frá tveimur félagsskiptum í gær þegar félagið tilkynnti markvörðinn Anatoliy Trubin og framherjann Arthur Cabral.

Lille er að styrkja hópinn hjá sér fyrir komandi átök haustsins og eru nokkrir leikmenn komnir inn eftir að Hákon Arnar Haraldsson var fenginn frá FC Kaupmannahöfn.

Haraldur Freyr Guðmundsson mun stýra Keflavík út tímabilið í Bestu deild karla. Luka Jagacic, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, verður honum til aðstoðar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er hættur sem þjálfari en hans síðasti leikur var 3-1 tapið gegn HK í gær. Áður hafði verið tilkynnt að Sigurður myndi stíga frá borði eftir tímabilið en í tilkynningu Keflavíkur er sagt að ákvörðun hafi verið tekin af stjórninni í dag að flýta því ferli og Sigurður var látinn fara.

Bournemouth er búið að festa kaup á bakverðinum Max Aarons sem er 23 ára gamall og kemur úr röðum Norwich City.

Leeds United er búið að tryggja sér velska miðvörðinn Joe Rodon á lánssamningi frá Tottenham sem gildir út tímabilið.

Breiðablik er búið að krækja í Valgerði Ósk Valsdóttur, sem hefur verið einn af bestu leikmönnum FH í Bestu deild kvenna í sumar.

Sádí-arabíska félagið Al-Hilal hafði betur í baráttunni við Nottingham Forest um brasilíska miðvörðinn Roger Ibanez sem kemur úr röðum Roma.

Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að festa kaup á sænska landsliðsmanninum Jens Cajuste, sem kemur fyrir 12 milljónir evra.

Andri Fannar Baldursson er búinn að skipta yfir til Elfsborg, toppliðsins í Svíþjóð. Hann kemur til félagsins á láni frá ítalska félaginu Bologna en Elfsborg á svo möguleika á því að kaupa hann fyrir ákveðna upphæð.
Birkir Bjarnason er formlega orðinn leikmaður ítalska félagsins Brescia á nýjan leik. Brescia féll úr ítölsku B-deildinni á síðasta tímabili. Birkir, sem er 35 ára, kemur til Brescia frá norska liðinu Viking þar sem hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum.
Bournemouth er búið að ganga frá kaupum á hinum efnilega Alex Scott sem kemur frá Bristol City.
Markvörðurinn efnilegi Herdís Halla Guðbjartsdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í FH, en hún kemur til félagsins á láni frá Breiðabliki.
Markvörðurinn Jökull Andrésson mun spila á komandi keppnistímabili með Carlisle í ensku C-deildinni. Áður en hann gekk í raðir Carlisle þá skrifaði hann undir samning við Reading sem gildir til ársins 2025.
Luton Town hefur gengið frá kaupum á skoska framherjanum Jacob Brown frá Stoke City. Luton er nýliði í ensku úrvalsdeildinni og spilar gegn Brighton á laugardaginn. Brown er 25 ára og kom til Stoke 2020, hann spilaði 141 leik fyrir félagið og skoraði 30 mörk.
Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Bestu deild kvenna því Ameera Abdella Hussen er búin að fá skipti yfir til félagsins.
West Ham hefur loksins keypt sinn fyrsta leikmann í sumar; Edson Alvarez er kominn til félagsins frá Ajax. Kaupverðið fyrir Alvarez er um 35 milljónir punda en leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning við Lundúnafélagið.

Fílbeinsstrendingurinn Franck Kessie er genginn til liðs við Al Ahli frá Barcelona. Kaupverðið er rúmlega 12 milljónir evra.

Sheffield United hefur nælt í brasilíska miðjumanninn Vinicius Souza frá Lommel. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

Burnley hefur gengið frá kaupum á norska miðjumanninum Sander Berge. Hann kemur til félagsins frá Sheffield United. Þetta eru ansi athyglisverð kaup í ljósi þess að Burnley og Sheffield United eru nýliðar og munu mögulega berjast við hvort annað í neðri helmingi deildarinnar. Berge átti eitt ár eftir af samningi sínum við Sheffield United og félagið hafði áhyggjur af því að missa hann frá sér á frjálsri sölu.
Ross Barkley hefur fengið félagaskipti yfir til nýliða Luton Town í ensku úrvalsdeildinni.