Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.11.2022, 10:22

Siggi Höskulds kynntur sem aðstoðarþjálfari Vals (Staðfest)

Sigurður Heiðar Höskuldsson verður aðstoðarmaður Arnars Grétarssonar hjá Val en Hlíðarendafélagið staðfesti þetta í dag. Þessar fréttir koma engum á óvart en greint var frá því í síðasta mánuði að Sigurður hefði gert samkomulag við Val.

FRÉTTIR02.11.2022, 10:12

Ray Anthony og Alexander stýra Reyni Sandgerði (Staðfest)

Um miðjan október var Ray Anthony Jónsson ráðinn þjálfari Reynis í Sandgerði til næstu tveggja ára. Reynir endaði í 11. sæti 2. deildar í sumar og leikur í 3. deildinni á næsta ári. Ray lék 336 leiki með Grindavík, Keflavík og GG á sínum ferli. Einnig á hann yfir 30 landsleiki fyrir Filippseyjar. Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað lið GG, meistaraflokk kvenna hjá Grindavík og núna síðast yngri flokka félagsins. Ray er með UEFA A þjálfararéttindi.

FRÉTTIR01.11.2022, 16:47

Rúnar Þór yfirgefur Keflavík (Staðfest)

Keflavík hefur tilkynnt að Rúnar Þór Sigurgeirsson verði ekki áfram leikmaður liðsins. Samningur Rúnars við Keflavík er útrunninn og mun Rúnar spila annars staðar á næsta tímabili. Rúnar lék með Víði sín fyrstu ári í yngri flokkum en skipti yfir í Keflavík í 5. flokki og hefur verið þar síðan. Rúnar hefur verið orðaður við sænska félagið Öster að undanförnu og eru góðar líkur á því að hann spili í Svíþjóð á næsta tímabili.

FRÉTTIR01.11.2022, 12:31

Arnór Smára heim í ÍA (Staðfest)

Arnór Smárason er genginn aftur í raðir uppeldisfélags síns ÍA. Hann hefur skrifað undir samning til 2024. Arnór, sem er 34 ára, hefur leikið með Val frá því hann kom heim úr atvinnumennsku í lok árs 2020. Hann hafði spilað í atvinnumennsku í Hollandi, Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi og Noregi áður en hann kom heim. Arnór er uppalinn hjá ÍA en hefur aldrei spilað keppnisleik með meistaraflokki félagsins. Það kemur til með að breytast á næstu leiktíð. Arnór ætlar að taka slaginn með ÍA þrátt fyrir fall liðsins úr efstu deild og ljóst er að hann verður eitt stærsta nafn sem spilað hefur í B-deild íslenska boltans. Arnór skoraði fimm mörk í 20 leikjum með Val í Bestu deildinni í sumar.

FRÉTTIR31.10.2022, 17:52

Glenn skrifaði undir tveggja ára samning við Keflavík (Staðfest)

Jonathan Glenn er næsti þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hann tekur við liðinu af Gunnari Magnúsi Jónssyni sem var látinn fara eftir síðustu leiktíð. Gunnar Magnús tók svo við Fylki í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR31.10.2022, 16:49

Pogba ekki með á HM (Staðfest)

Miðjumaðurinn Paul Pogba mun missa af HM í Katar vegna meiðsla. Umboðsmaður hans, Rafaela Pimenta, staðfesti þetta við fjölmiðla í dag. Pogba, sem gekk aftur í raðir Juventus frá Manchester United í sumar, var lykilmaður í franska liðinu þegar það vann HM 2018. Frakkland er í riðli með Ástralíu, Danmörku og Túnis á HM. Pogba hefur ekki getað spilað neitt fyrir Juventus eftir endurkomuna vegna meiðsla. Hann meiddist á hné á undirbúningstímabilinu og svo kom bakslag í endurhæfingu hans á æfingasvæðinu. Þetta er högg fyrir miðsvæði franska landsliðsins en áður var það staðfest að N'Golo Kante yrði ekki með á mótinu vegna meiðsla.

FRÉTTIR31.10.2022, 16:07

ÍA riftir samningum við erlenda leikmenn (Staðfest)

ÍA hefur rift samningum við þrjá erlenda leikmenn félagsins; Alexander Davey, Christian Köhler og Kaj Leo í Bartalsstovu. Þeir munu yfirgefa félagið ásamt Kristian Lindberg, Tobias Stagaard og Wout Droste en samningar þeirra runnu út. <i>„Öllum þessum leikmönnum er óskað velgengni á nýjum vettvangi,"</i> segir í tilkynningu ÍA. Johannes Vall er þá eini erlendi leikmaðurinn sem stendur eftir en hann er samningsbundinn út næsta tímabil.

FRÉTTIR31.10.2022, 14:35

Gummi Kristjáns í Stjörnuna (Staðfest)

Guðmundur Kristjánsson hefur skrifað undir samning við Stjörnuna og mun leika með félaginu næstu árin. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Guðmundur er 33 ára og hefur síðustu ár spilað sem miðvörður. Samningur hans við FH rann út eftir tímabilið sem lauk um helgina. Hann varð Íslandsmeistari með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki sumarið 2010 og fór tímabilið 2012 á láni til Start í Noregi. Í kjölfarið gekk hann svo alfarið í raðir Start og var þar í fimm tímabil í viðbót.

FRÉTTIR31.10.2022, 14:13

Natasha Anasi til liðs við Noregsmeistara Brann (Staðfest)

Natasha Anasi, sem var lykilmaður í liði Breiðabliks í sumar, er búin að semja við Brann, topplið norsku úrvalsdeildarinnar. Það var Fótbolti.net sem sagði fyrst frá áhuga Brann á Natöshu í sumar og í <a href="https://fotbolti.net/news/17-10-2022/hafa-enn-mikinn-ahuga-a-thvi-ad-kaupa-natoshu-fra-breidabliki" target="_blank">október var greint frá því að Brann væri enn að reyna að kaupa hana</a>.

FRÉTTIR31.10.2022, 13:36

FH fær Aldísi frá Val (Staðfest)

FH hefur fengið Aldísi Guðlaugsdóttur í sínar raðir frá Val. Aldís er 18 ára gömul, hún varði mark FH seinni hluta tímabilsins í sumar og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í Bestu deildinni. Aldísi kom á láni um miðbik móts og leysti Fanneyju Ingu Birkisdóttur af hólmi, en Fanney hafði verið á láni hjá FH fyrri hlutann.

FRÉTTIR31.10.2022, 13:12

Eyþór Wöhler í Breiðablik (Staðfest)

Eyþór Aron Wöhler er genginn í raðir Breiðabliks frá ÍA og skrifar undir tveggja ára samning við Íslandsmeistarana. Eyþór var að renna út á samningi hjá ÍA og kemur því á frjálsri sölu. Eyþór er uppalinn í Aftureldingu en hefur undanfarin tvö tímabil spilað með ÍA. Hann er kraftmikill sóknarmaður sem getur leyst allar fremstu stöðurnar á vellinum. Hann vakti athygli á tímabilinu fyrir mikinn dugnað og skoraði auk þess níu mörk í 25 leikjum á tímabilinu.

FRÉTTIR31.10.2022, 13:04

Breiðablik kaupir Alex Frey (Staðfest)

Alex Freyr Elísson er genginn í raðir Breiðabliks frá uppeldisfélagi sínu Fram. Þetta staðfestir Fram á samfélagsmiðlum rétt í þessu. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Breiðablik. Alex var samningsbundinn Fram og því er Breiðablik að kaupa leikmanninn frá Fram. Alex lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2015 og lék alls 153 leiki fyrir Fram. Hann er 25 ára hægri bakvörður sem átti mjög tímabil í ár, lék 20 deildarleiki og skoraði tvö mörk á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

FRÉTTIR31.10.2022, 10:52

Guðrún Elísabet í Val (Staðfest)

Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir er gengin í raðir Vals frá Aftureldingu. Guðrún er fædd árið 2000 og getur leikið allar stöður fram á við. Guðrún skrifar undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana. Hún var langmarkahæst í Lengjudeildinni í fyrra þegar Afturelding fór upp í efstu deild.

FRÉTTIR29.10.2022, 19:51

Ívar Örn og Ívar Orri áfram í HK (Staðfest)

Ívar Örn Jónsson verður hjá HK næstu tvö árin en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í dag og spilar því með liðinu í Bestu deildinni á næsta ári. Ívar Orri Gissurarson hefur einnig framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.