Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mið 05. september 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Mignolet ekki með Belgíu til Íslands
Simon Mignolet.
Simon Mignolet.
Mynd: Getty Images
Simon Mignolet, markvörður Liverpool, hefur dregið sig út úr belgíska landsliðshópnum sem mætir Íslandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.

Mignolet er að glíma við smávægileg meiðsli því hefur hann dregið sig úr hópnum.

Hinn þrítugi Mignolet verður væntanlega ekki lengi frá en Liverpool greinir frá því að hann ætti að verða klár í leikinn gegn Tottenham eftir landsleikjahlé.

Mignolet er varamarkvörður Liverpool sem og belgíska landsliðsins en þar er Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, aðalmarkvörður.

Belgar mæta Skotum í vináttuleik á föstudag áður en þeir halda til Íslands.

Sjá einnig:
Belgíski hópurinn sem mætir Íslandi
Athugasemdir
banner
banner