Augsburg 3 - 1 Borussia M.
0-0 Lars Stindl ('38 , Misnotað víti)
1-0 Ruben Vargas ('52 )
1-1 Florian Neuhaus ('68 )
2-1 Marco Richter ('76 )
3-1 Andre Hahn ('89 )
0-0 Lars Stindl ('38 , Misnotað víti)
1-0 Ruben Vargas ('52 )
1-1 Florian Neuhaus ('68 )
2-1 Marco Richter ('76 )
3-1 Andre Hahn ('89 )
Augsburg lagði Borussia Monchengladbach 3-1 í þýsku deildinni í kvöld en Alfreð Finnbogason var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Gladbach fékk tækifæri til að komast yfir á 38. mínútu en Lars Stindl klúðraði af vítapunktinum. Staðan í hálfleik markalaus.
Ruben Vargas kom Augsburg yfir á 52. mínútu áður en Florian Neuhaus jafnaði metin á 68. mínútu. Marco Richter kom Augsburg aftur yfir áður en hann lagði upp þriðja markið fyrir Andre Hahn undir lokin.
Lokatölur 3-1 fyrir Augsburg sem er í 13. sæti með 29 stig á meðan Gladbach er í 10. sæti með 33 stig.
Athugasemdir