Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 20:21
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois og Valverde í liði vikunnar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
UEFA hefur gefið út opinbert draumalið umferðarinnar eftir að fyrri leikirnir voru spilaðir í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Leikmenn dreifast nokkuð jafnt á sigurliðin þar sem sitthvort Madrídarliðið fær tvo fulltrúa í liðinu alveg eins og FC Bayern og Galatasaray.

Bodö/Glimt, Bayer Leverkusen og PSG fá einn fulltrúa hvert.

Thibaut Courtois er á milli stanganna eftir að hann átti meistaralega markvörslu á marktilraun frá Nico O'Reilly auk þess að verja vítaspyrnu og halda hreinu í 3-0 sigri Real Madrid gegn Manchester City. Liðsfélagi hans Federico Valverde er einnig í liðinu enda skoraði hann öll mörk leiksins á Santiago Bernabéu.

Robin Le Normand og Julián Alvarez eru fulltrúar Atlético í liðinu eftir stórsigur gegn Tottenham, þar sem miðvörðurinn Le Normand komst á blað á meðan Alvarez skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu.

Josip Stanisic og Michael Olise voru í stuði í risasigri Bayern á útivelli gegn Atalanta og komast í liðið ásamt Mario Lemina og Ismail Jakobs, sem voru í lykilhlutverki í frábærum sigri Galatasaray á Englandsmeisturum Liverpool.

Sondre Brunstad Fet er leikmaður Bodö/Glimt sem ratar í úrtaksliðið eftir frækinn 3-0 sigur á Sporting á meðan Khvicha Kvaratskhelia er fulltrúi ríkjandi meistara Paris Saint-Germain eftir að hafa komið inn af bekknum til að skora tvö mörk gegn Chelsea.

Robert Andrich fyrirliði Bayer Leverkusen kemst að lokum í liðið fyrir flotta frammistöðu í jafntefli gegn Arsenal. Hann skoraði fyrsta mark leiksins sem dugði þó ekki til að sigra.

Lið vikunnar (4-3-3): Courtois - Stanisic, Le Normand, Andrich, Jakobs - Valverde, Lemina, Brunstad Fet - Olise, Kvaratskhelia, Alvarez


Athugasemdir
banner