Varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck segir ekki rétt að hann sé við það að skrifa undir nýjan samning við Borussia Dortmund.
Það hefur verið mikil jákvæðni í kringum viðræðurnar að undanförnu en brottför Sebastian Kehl, yfirmanns fótboltamála hjá Dortmund, hefur sett strik í reikninginn.
Það hefur verið mikil jákvæðni í kringum viðræðurnar að undanförnu en brottför Sebastian Kehl, yfirmanns fótboltamála hjá Dortmund, hefur sett strik í reikninginn.
„Ég ræddi við Sebastian (Kehl) en hann er því miður ekki lengur með okkur," sagði Schlotterbeck.
„Þetta er ekki auðveld staða fyrir mig."
Samningur Schlotterbeck rennur út sumarið 2027 og hefur Dortmund verið að reyna að gera allt sem félagið getur til að fá hann til að skrifa undir nýjan og langan samning. Samkvæmt fréttum frá Þýskalandi var Dortmund tilbúið að gera hann að launahæsta leikmanni félagsins en núna er komið babb í bátinn.



