Aymen Hussein, landsliðsmaður Írak, er maður sem stendur við stóru orðin en tíu ár eru liðin síðan hann setti sér það markmið að koma þjóðinni á HM og sá hann um að gera það í úrslitaleik gegn Bólivíu.
Árið 2016 var Hussein tekinn í viðtal og spurður þar út í Younis Mahmoud, sem er talinn einn besti leikmaður í sögu Írak.
Hussein var ætlað að taka við keflinu og setti hann sér strax það markmið að koma þjóðinni á HM.
Nú tíu árum síðar stóð hann við loforðið. Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigrinum á Bólivíu í umspili um sæti á HM, en þetta verður aðeins í annað sinn í sögunni sem Írak fer á mótið nákvæmlega 40 árum síðan það fór fyrst á mótið.
„Mahmoud hefur verið að spila með A-landsliðinu í sextán ár. Það er ekki nóg, en hann hefur gefið okkur svo mikið,“ sagði Hussein árið 2016 um Mahmoud sem lagði skóna á hilluna það árið.
Í kjölfarið var hann spurður hvað hann kæmi með inn í liðið í stað Mahmoud og var Hussein kokhraustur.
„Ég ætla með okkur á HM,“ sagði hann og spurði blaðamaðurinn hvort hann myndi sjá um það og svaraði Hussein um hæl: „Ef Allah leyfir.“ . Hann skoraði níu mörk í undankeppni HM og það mikilvægasta í sigrinum á Bólivíu sem reyndist sigurmarkið leiksins.
Hér fyrir neðan má sjá mark Hussein sem tryggði Írökum farseðilinn til Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó.
Írak verður í riðli með Frakklandi, Noregi og Senegal, en fyrsti leikurinn verður gegn Norðmönnum þann 16. júní.
IF YOU KNOW ANYTHING ABOUT AYMEN HUSSEIN
— dedo ?? (@dlicps) April 1, 2026
IT’S THAT HE IS INEVITABLE
IRAQ LEAD ONCE AGAIN AGAINST BOLIVIA
???????????????????????? pic.twitter.com/zGy9n0pz4S



