Argentínumaðurinn Gianluca Prestianni hefur loks svarað fyrir þær ásakanir um að hann hafi beitt brasilíska sóknarmanninn Vinicius Jr kynþáttaníði í leik Real Madrid og Benfica í umspili Meistaradeildarinnar í febrúar, en hann segist blásaklaus.
Prestianni hrópaði einhverju að Vini Jr í leiknum umrædda sem varð til þess að Vini hljóp til dómarans og sakaði hann um kynþáttafordóma.
Í atvikinu sést Prestianni lyfta treyjunni yfir munninn og segja eitthvað, en það er ómögulegt að segja til um hvað hann sagði.
UEFA bannaði Prestianni að spila seinni leikinn gegn Real Madrid, en hann segist vera særður vegna þeirra ásakana sem bornar voru fram á hendur honum.
„Það sem særði mig mest var að vera ásakaður um eitthvað sem ég gerði aldrei. Ég er ekki rasisti.“
„Sem betur fer er ég mjög rólegur að eðlisfari og allir sem þekkja mig vita hvaða manneskju ég hef að geyma og það er nóg fyrir mig. Ég er þakklátur félaginu. Þeir trúðu mér og sýndu mér stuðning á alla vegu. Liðsfélagarnir gerðu það líka bak við luktar dyr og það hefur miklu meiri þýðingu fyrir mér en einhver Instagram-færsla.“
„Það særði mig mikið að spila ekki seinni leikinn. Mér var refsað fyrir eitthvað sem ég sagði ekki. Það var komið fram við mig og refsað án sannana, en þessu er lokið. Ég er þakklátur liðinu og þjálfarateymi Benfica sem biðu fram að síðustu mínútu til að sjá hvort ég gæti spilað. Ég er þakklátur fyrir það.“
„Ég ræddi við Mourinho, alveg eins og ég gerði við liðsfélaga mína, til þess að fullvissa þá um að ekkert hafi átt sér stað því það voru orðrómar á kreiki og það gæti hafa ruglað liðsfélaga mína.“
„Ég hef átt liðsfélaga af sama litarhafti og Vinicius og það hefur aldrei neitt gerst okkar á milli. Það er þveröfugt. Síðan kalla þeir mig hómófóbískan ofan á það sem mér fannst einum of mikið. Mér leið eins og fólk væri að reyna skapa drama yfir einhverju sem var ekki satt. Orðið „maricón„ eða „cagón“ eru mjög hefðbundin orð sem Argentínumenn nota til að móðga, en sem betur fer fékk ég stuðning frá þjálfarateyminu og liðsfélögunum sem veitti mér hugarró,“ sagði Prestianni.
Það er alveg rétt hjá Prestianni að „maricón“ er hægt að túlka á marga vegu, en spurningin er hver var meining hans þegar hann lét þessi orð falla. Ekki er hægt að sanna það, en ein meiningin er hómófóbísk á meðan „cagón“ er hægt að túlka sem heigul.
Mbappe kallaði Prestianni rasista eftir atvikið en Argentínumaðurinn var allt annað en sáttur með franska sóknarmanninn.
„Hvað með þegar Mbappe kallaði mig fokking rasista? Þú ert að móðga einhvern með því að kalla hann rasista þegar ég hef og mun aldrei verða það. Hann var augljóslega að reyna að pirra mig í leiknum. Ég vildi ekki bregðast við og mun ekki gera það,“ sagði Prestianni í viðtali við TeleFe.


