England þurfti að sætta sig við tap gegn Japan í vináttulandsleik í kvöld.
Leikurinn var á Wembley en það var Kaoru Mitoma, leikmaður Brighton, sem skoraði eina markið um miðbik fyrri hálfleiks.
Leikurinn var á Wembley en það var Kaoru Mitoma, leikmaður Brighton, sem skoraði eina markið um miðbik fyrri hálfleiks.
Harry Kane var fjarri góðu gamni vegna meiðsla og Englendingar voru bitlausir án hans. Phil Foden spilaði sem fölsk nía og heillaði ekki.
England átti bara tvö skot á markið í leiknum og ógnaði lítið sem ekkert.
„Slök spilamennska sem vakti upp fleiri spurningar en svör," segir í textalýsingu BBC leiknum en þetta var síðasti leikur Englendinga fyrir valið á HM hópnum.
Svona var byrjunarlið Englands í kvöld: Pickford; White, Konsa, Guehi, O'Reilly; Anderson, Mainoo; Palmer, Rogers, Gordon; Foden.


