Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 09:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Örlög U21 ráðast í haustglugganum - Enn góður möguleiki
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslenska U21 landsliðið náði í þrjú stig úr tveimur leikjum í landsleikjaglugganum. Liðið vann 6-2 sigur á Eistlandi á heimavelli og tapaði naumlega, 2-1, gegn Frökkum í Auxerre.

Leikirnir voru liðir í undankeppni EM 2027 og lýkur undankeppninni í október. Ísland á þrjá leiki eftir í undankeppninni og er sem stendur þremur stigum frá umspilssæti og fimm stigum frá toppliði Frakka í riðlinum. Toppliðið fer beint á EM en liðið í 2. sæti fer í umspil.

Næsti leikur Íslands verður gegn Frakklandi á heimavelli og í sama glugga tekur liðið á móti Sviss og heimsækir loks Færeyjar í lokaleik undankeppninnar. Í sama landsleikjaglugga spilar A-landsliðið í Þjóðadeildinni.

Sviss, sem vann sanngjarnan sigur, 2-1, gegn Eistlandi í gær tekur á móti Lúxemborg í fyrsta leiknum, kemur svo til Íslands og heimsækir Frakka í lokaleiknum.

Frakkar eiga eftir að spila fjóra leiki í riðlinum og spila mjög þétt í haustglugganum. Koma fyrst til Íslands, halda svo til Eistlands og enda svo á heimaleikjum gegn Lúxemborg og Sviss.

Ísland er með betri markatölu en Sviss og má sjá stöðuna í riðlinum hér að neðan.
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 6 5 0 1 21 - 4 +17 16
2.    Sviss 7 4 1 2 10 - 5 +5 14
3.    Ísland 7 3 2 2 14 - 9 +5 11
4.    Færeyjar 7 3 4 0 6 - 13 -7 9
5.    Lúxemborg 6 1 4 1 7 - 14 -7 4
6.    Eistland 7 0 5 2 8 - 21 -13 2
Slapp
banner
banner