Breiðablik og FH mætast á morgun í Meistarar meistaranna í kvennaflokki. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður á Kópavogsvelli.
Leikurinn er styrktarleikur fyrir Kolfinnu Rán Færseth, fótboltastelpu fæddri árið 2013 sem hefur verið að berjast við krabbamein.
Aðgangseyri er 2000 krónur og rennur allur ágóði af leiknum óskiptur til Kolfinnu. Hægt er að nálgast miða hérna
„Með leiknum vilja félögin sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að styðja Kolfinnu Rán og fjölskyldu hennar,“ segir í tilkynningu.

Kolfinna hefur lokið 16 lyfjameðferðum og á tvær eftir. Í desember síðastliðnum fór hún til Svíþjóðar í aðgerð þar sem lærleggurinn var fjarlægður alveg upp í mjaðmakúlu og settur íhlutur í staðinn. Jafnframt þurfti að taka tvo af stóru vöðvunum framan á lærinu og framundan er því mikil endurhæfing bara við að læra að ganga aftur.
Reikningur Kolfinnu:
0702-15-190113
Kt.190113-2210