Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 31. mars 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stór síða valdi Sveindísi leikmann vikunnar
Kvenaboltinn
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur heldur betur verið að finna fæturnar í Bandaríkjunum.

Íslenska landsliðskonan hefur komið að fjórum mörkum í síðustu þremur leikjum sínum með Angel City og virðist ekkert geta stöðvað hana.

Um síðastliðna helgi skoraði hún glæsimark þegar Angel City vann sigur gegn Houston Dash, 2-1.

Victra Sports, sem er með um 100 þúsund fylgjendur á Instagram, valdi Sveindísi því leikmann vikunnar.

Þetta er virkilega skemmtilegt en Sveindís er farin að vekja mikla athygli í Bandaríkjunum eftir öfluga byrjun á tímabilinu.



Slapp
banner
banner
banner