Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 23:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Systurnar fóru fyrir liði KR
Kvenaboltinn
Katla Guðmundsdóttir.
Katla Guðmundsdóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það fóru tveir leikir fram í B-deild Lengjubikars kvenna í kvöld. KR fór heim með stigin þrjú af Akranesi.

Þar voru það systurnar Kara og Katla Guðmundsdætur sem skoruðu mörkin fyrir KR. Kara skoraði tvö og Katla var með hitt markið en Lilja Björg Ólafsdóttir gerði mark ÍA.

KR er þar með við hlið HK á toppi riðilsins en HK lagði Hauka að velli á Ásvöllum í kvöld. Cally Queen Togiai og Karlotta Björk Andradóttir gerðu mök HK í leiknum, báðar skoruðu þær tvisvar.

HK og KR hafa tíu stig á toppi riðilsins, Haukar eru með sjö stig í þriðja sæti og ÍA er með fjögur stig í næst neðsta sæti. HK, KR og ÍA eiga tvo leiki eftir á meðan Haukar hafa spilað alla sex leiki sína í riðlinum.

ÍA 1 - 3 KR
0-1 Kara Guðmundsdóttir ('9 )
0-2 Katla Guðmundsdóttir ('58 )
1-2 Lilja Björg Ólafsdóttir ('84 )
1-3 Kara Guðmundsdóttir ('90 )

Haukar 2 - 4 HK
0-1 Karlotta Björk Andradóttir ('22 )
0-2 Cally Queen Togiai ('26 )
1-2 Elma Dís Ólafsdóttir ('43 )
1-3 Cally Queen Togiai ('55 )
1-4 Karlotta Björk Andradóttir ('76 )
2-4 Halla Þórdís Svansdóttir ('86 )
Slapp
banner