Það fóru fram þónokkrir vináttulandsleikir í gær og nótt og má sjá helstu úrslit hér að neðan.
Portúgal vann 0-2 sigur á Bandaríkjunum í nótt og lagði Bruno Fernandes upp mörkin fyrir Trincao og Joao Felix.
Julian Alvarez, Lionel Messi og Valentin Barco voru á skotskónum í stórsigri Argentínu gegn Sambíu. Leikurinn var síðasti heimaleikur Otamendi með landsliðinu og leyfði Messi honum að taka vítaspyrnu á 50. mínútu leiksins. Otamendi, sem er 38 ára, skoraði sitt sjöunda landsliðsmark úr spyrnunni.
Spánverjum tókst ekki að skora gegn Túnis, Nicolas Pepe minnti á sig með Fílabeinsströndinni og Holland spilaði lengi manni færri gegn Ekvador eftir að Denzel Dumfries fékk að líta rauða spjaldið.
Brasilía vann svo Króatíu í nótt þar sem Igor Thiago skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og Gabriel Martinelli innsiglaði sigurinn undir lokin.

Argentina win a penalty… and everyone expects Messi to step up.
— MC (@CrewsMat10) April 1, 2026
But he just steps back and hands it to Otamendi instead. ????
No ego. No spotlight chasing. Just control, calm, and leadership in its purest form.
Messi doing Messi things… again ????????
https://t.co/M15GihaH8D
USA 0 - 2 Portúgal
Argentína 5 - 0 Sambia
Kanada 0 - 0 Túnis
Brasilía 3 - 1 Króatía
Mexikó 1 - 1 Belgía
Spánn 0 - 0 Egyptaland
Kosta Ríka 0 - 5 Íran
Svartfjallaland 2 - 3 Slóvenía
Noregur 0 - 0 Sviss
Serbía 2 - 1 Sádi-Arabía
Skotland 0 - 1 Fílabeinsströndin
Holland 1 - 1 Ekvador