Það verður Íslendingaslagur í úrslitaleik Evrópubikars kvenna þar sem sænsku liðin Hacken og Hammarby mætast.
Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru í byrjunarliði Hacken sem fékk Frankfurt í heimsókn.
Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru í byrjunarliði Hacken sem fékk Frankfurt í heimsókn.
Hacken vann öruggan 3-0 sigur á útivelli í fyrri leiknum. Liðið þurfti að sætta sig við 1-0 tap í kvöld en er komið í úrslit þar sem liðið vann viðureignina samanlagt 3-1.
Hammarby fékk Sparta Prag í heimsókn og Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði sænska liðsins. Hammarby vann fyrri leikinn 3-2.
Liðið komst yfir eftir rúmlega hálftíma leik í kvöld og var komið í fína stöðu í einvíginu. Annað markið kom síðan eftir rúmlega klukkutíma leik og þar við sat. Liðið vann því samanlagt 5-2.
Úrslitaleikurinn er tveggja leikja einvígi. Fyrri leikurinn fer fram 25. eða 26. apríl og seinni leikurinn 2. eða 3. maí. Sigurvegarinn mun taka þátt í undankeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili.
Hacken 0 - 1 Frankfurt (3-1)
0-1 Nicole Anyomi ('31 )
Hammarby 2 - 0 Sparta Prag (5-2)
1-0 Fanny Peterson ('33 )
2-0 Vilde Haslund ('62 )


