Fjölnir 2 - 1 Víðir
0-1 Ísak John Ævarsson ('40, víti )
1-1 Aron Fannar Hreinsson ('90 )
2-1 Bjarni Þór Hafstein ('99 )
0-1 Ísak John Ævarsson ('40, víti )
1-1 Aron Fannar Hreinsson ('90 )
2-1 Bjarni Þór Hafstein ('99 )
Fjölnir var síðasta liðið til að tryggja sig inn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins með því að vinna Víði, 2-1, eftir framlengdan leik í Egilshöll í kvöld.
Víðir braut ísinn á 40. mínútu leiksins þegar Birgir Þór Jóhannsson braut á Dominic Lee Briggs hægra megin í teignum.
Ísak John Ævarsson fór á punktinn og reyndi Snorri Þór Stefánsson, markvörður Fjölnis, allt til þess að taka hann á taugum, en Ísak var ískaldur og setti boltann snyrtilega í hægra hornið á meðan Snorri skutlaði sér í hina áttina.
Fjölnismenn pressuðu Víði hátt upp völlinn undir lok venjulegs leiktíma og uppskáru þeir jöfnunarmark í blálokin sem kom þeim áfram í framlengingu en það gerði Aron Fannar Hreinsson með skoti hægra megin úr teignum.
Bjarni Þór Hafstein skoraði síðan sigurmarkið á 99. mínútu í framlengingu og sendi Fjölni áfram í 32-liða úrslit. Hann fékk boltann í miðjum teignum og skoraði með hnitmiðuðu skoti neðst í vinstra hornið.
Andstæðingur Fjölnis verður HK en leikurinn fer fram á mánudag.
Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum.
;


