Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skoðun
Þrír sigurvegarar úr landsliðsverkefninu
Eimskip
Orri Steinn skoraði tvö mjög góð mörk.
Orri Steinn skoraði tvö mjög góð mörk.
Mynd: KSÍ
Gylfi á skotskónum.
Gylfi á skotskónum.
Mynd: KSÍ
Íslenska landsliðið gerði svekkjandi jafntefli gegn Kanada og Haítí í landsleikjaglugganum. Fyrir fram var jafntefli gegn Kanada ekki slæm úrslit en eftir að hafa leitt 0-2 þá var svekkjandi að ná ekki sigri í fyrri leiknum í glugganum.

Haítí var svo sýnd veiði, en alls ekki gefin, og íslenska liðið mikið breytt frá leiknum gegn Kanada.

Þetta voru ekki mest spennandi leikir í heimi, nokkuð lokaðir og skilja ekki mikið eftir sig. Að mínu mati komu þrír landsliðsmenn úr glugganum sem sigurvegarar.


Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson mætti aftur í hópinn eftir meiðsli og er augljós sigurvegari. Hann átti enga glimrandi frammistöðu úti á vellinum gegn Kanada en tók færin sín tvö frábærlega og minnti á hversu mikilvægur hann er liðinu.

Gylfi Þór Sigurðsson kom ekki við sögu gegn Kanada en byrjaði gegn Haítí og lék stærstan hluta leiksins. Hann var besti leikmaður liðsins í leiknum, styrkti markametið sitt, varð næstelsti markaskorari í sögu landsliðsins og sýndi öllum að hann getur enn spilað á þessu getustigi. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi og fyrrum liðsfélagi Gylfa í landsliðinu, kallaði í enn eitt skiptið eftir Gylfa í liðið eftir leikinn í gær. Kári lagði til að Hákon Arnar Haraldsson yrði færður út á kant í sterkasta liði Íslands og Gylfi kæmi inn á miðjuna með Ísaki Bergmanni Jóhannessyni.

Loks var Daníel Leó Grétarsson sigurvegari í þessum glugga, en þó alls ekki fullkominn sigurvegari. Daníel Leó átti að vera með í þessu landsliðsverkefni en meiddist í síðasta leik með Sönderjyske og fór því ekki með til Kanada. Daníel er meiddur á ökkla og verður eitthvað frá vegna meiðslanna. Helsti kostur leikmanns er að geta verið til taks og Daníel tikkaði ekki í það box. En þeir sem spiluðu í hjarta varnarinnar sýndu landsliðsþjálfaranum enga drauma frammistöðu. Sverrir Ingi Ingason er miðvörður númer eitt í landsliðinu og stóð sig fínt gegn Kanada. Hörður Björgvin Magnússon spilaði við hlið Sverris gegn Kanada og gaf mjög klaufalegt víti í þeim leik. Í marki Haítí í gær litu svo þeir Aron Einar Gunnarsson og Hjörtur Hermannsson, sem kallaður var inn í hópinn fyrir Daníel, í hjarta varnarinnar ekki mjög sannfærandi út.

Íslenska landsliðið kemur næst saman í lok maí og spilar í Japan gegn heimamönnum og Íran (óstaðfestur mótherji). Næsta verkefni á eftir því er svo í Þjóðadeildinni næsta haust sem er mjög mikilvæg upp á mögulegt EM sæti.
Slapp
banner
banner