Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
   þri 31. mars 2026 20:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Eimskip
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson.
Mynd: KSÍ
„Við eigum bara að loka svona leikjum. Það er það sem við verðum að taka úr þessum leik, þessar síðustu 15 mínútur," sagði Aron Einar Gunnarsson eftir 1-1 jafntefli gegn Haítí í vináttulandsleik í kvöld.

Það er lærdómurinn úr báðum þessum leikjum, að læra að loka leikjum.

Lestu um leikinn: Haítí 1 -  1 Ísland

„Já, 100%. Það er mikið af jákvæðum hlutum, góðum uppspilspunktum og hreyfingum. En við erum yfir í tveimur leikjum og missum þá báða niður í jafntefli, það verðum við að bæta."

Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, var á skotskónum í kvöld.

„Við vitum allir hversu mikil gæði Gylfi er með. Flott mark og góð afgreiðsla. Við vitum hvernig hann berst fyrir liðið, það hefur aldrei vantað upp á hjá honum," sagði Aron sem var kominn aftur með fyrirliðabandið í kvöld.

„Ég er kannski of vanur að vera með það. Gott að spila. Það er alltaf mjög mikið stolt og ég tek því aldrei sem sjálfsögðum hlut að spila fyrir landsliðið."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner