Íslenska U17 landsliðið vann lokaleik sinn í undankeppni fyrir EM í gær þegar liðið lagði Portúgal að velli.
Fyrirliðinn Alexander Máni Guðjónsson skoraði sigurmarkið á annarri mínútu uppbótartíma þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti eftir góða skyndisókn íslenska liðsins. Sigurmarkinu var vel fagnað; varamenn íslenska liðsins hlupu inn á völlinn.
Það var Þorri Ingólfsson sem hafði skorað fyrra mark Íslands og fyrsta mark leiksins á 40. mínútu.

Ísland endaði í þriðja sæti riðilsins. Ítalía endaði á toppi riðilsins eftir 2-1 sigur á Rúmeníu og er því komið í lokakeppni EM.