Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekkert gengur hjá Martial - Refsað fyrir reiðiskast
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: EPA
Anthony Martial, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið settur í bann af félagi sínu, Monterrey í Mexíkó, eftir að hafa tekið pirringskast í leik.

Martial, sem spilaði yfir 300 leiki á níu árum sínum á Old Trafford, yfirgaf Man Utd þegar samningur hans rann út sumarið 2024. Hann fór í stutta stund til AEK í Grikklandi en skipti yfir til Mexíkó í september í fyrra.

Samkvæmt mexíkóska miðlinum TUDN hefur Martial verið settur til hliðar á æfingum hjá Monterrey eftir að hafa brugðist illa við í leik liðsins gegn Chivas de Guadalajara um síðustu helgi. Framherjinn, sem er þrítugur, á að hafa reiðst mjög þegar hann var ekki sendur inn á völlinn er Monterrey var þremur mörkum undir.

Bræði Martial fór ekki framhjá þjálfarateymi Monterrey og var honum í kjölfarið refsað, en honum var gert að æfa fjarri aðalliðshópnum það sem eftir lifir vikunnar.

Framherjinn hefur auk þess átt erfitt uppdráttar undanfarið og aðeins skorað eitt mark í síðustu 21 leik sínum fyrir mexíkóska félagið.
Slapp
banner
banner
banner