Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 10:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meta að dómarinn hafi gert rétt að dæma ekki þegar Amad fór niður
Amad Diallo fékk ekki vítaspyrnu en margir voru ósammála þeirri niðurstöðu.
Amad Diallo fékk ekki vítaspyrnu en margir voru ósammála þeirri niðurstöðu.
Mynd: HK
Maguire fékk rautt og víti dæmt á sig.
Maguire fékk rautt og víti dæmt á sig.
Mynd: EPA
Fofana hefði átt að fá víti gegn Everton.
Fofana hefði átt að fá víti gegn Everton.
Mynd: EPA
Nefnd hjá úrvalsdeildinni hefur skoðað vafaatriði síðustu umferðar í deildinni og komst að þeirri niðurstöðu að dómari leiks Bournemouth og Manchester United, og VAR dómari, hafi gert rétt þegar ákveðið var að dæma ekki aðra vítaspyrnu fyrir United í leiknum.

Amad Diallo fór niður í vítateig Bournemoth eftir að Adrien Truffert setti hendur á hann. Stuart Attwell dæmdi ekkert á vellinum, Bournemouth sótti upp völlinn og Ryan Christie jafnaði leikinn. Craig Pawson í VAR herberginu ákvað að grípa ekki inn í og er nefndin sammála þeirri niðurstöðu - en það voru þó ekki allir sammála.

Fimm atkvæði voru greidd, þrjú með ákvörðun dómarans og tvö á móti. Rökin á móti því að dæma víti voru þau að varnarmaðurinn hefði tekið áhættu með því að snerta sóknarmanninn en snertingin hafi ekki verið það mikil. Þeir tveir sem hefðu dæmt víti sögðu að snertingin væri ekki fótboltasnerting og það hefði átt að dæma víti. Allir í nefndinni voru sammála um að VAR hafi ekki átt að grípa inn í þar sem mistökin voru ekki augljós.

Allir í nefndinni voru sammála um að rétt hafi verið að dæma vítaspyrnu á Alex Jimenez þegar hann gerðist brotlegur gegn Matheus Cunha fyrr í sama leik. Svo voru fjórir sammála, en einn ósammála, þegar kom að vítaspyrnunni og rauða spjaldinu á Harry Maguire.

Að mati nefndarinnar misstu dómarar af einni vítaspyrnu, en þó ekki um mjög augljós mistök að ræða (3:2 í atkvæðum) í síðustu umferð. Chelsea hafi átti að fá vítaspyrnu þegar James Tarkowski setti handlegg í bringu Wesley Fofana í stöðunni 3-0 fyrir Everton gegn Chelsea. Það voru hins vegar fleiri sammála því að VAR hafi ekki átt að grípa inn í því atviki (aftur 3:2 í atkvæðum).
Slapp
banner
banner
banner