Grótta 6 - 4 Selfoss
0-1 Stevie Madonna Reynolds ('1 )
0-2 Juliana Marie Paoletti ('22 )
1-2 Birna Hrólfsdóttir ('28 )
1-3 Björgey Njála Andreudóttir ('40 )
1-4 Olga Lind Gestsdóttir ('53 )
2-4 Alexandria Madden ('63 )
3-4 Birna Hrólfsdóttir ('76 )
4-4 Nicole Douglas ('80 )
5-4 Nicole Douglas ('82 )
6-4 Alexandria Madden ('84 )
0-1 Stevie Madonna Reynolds ('1 )
0-2 Juliana Marie Paoletti ('22 )
1-2 Birna Hrólfsdóttir ('28 )
1-3 Björgey Njála Andreudóttir ('40 )
1-4 Olga Lind Gestsdóttir ('53 )
2-4 Alexandria Madden ('63 )
3-4 Birna Hrólfsdóttir ('76 )
4-4 Nicole Douglas ('80 )
5-4 Nicole Douglas ('82 )
6-4 Alexandria Madden ('84 )
Grótta vann Selfoss, 6-4, í stórskemmtilegum leik í B-deild Lengjubikars kvenna á Vivaldi-vellinum í kvöld, en þetta var fimmta tap Selfyssinga í keppninni.
Skemmtunin hófst strax á 1. mínútu er Stevie Madonna Reynolds skoraði fyrir Selfoss. Juliana Marie Paoletti tvöfaldaði forystuna áður en Birna Hrólfsdóttir minnkaði muninn. Björgey Njála Andreudóttir og Olga Lind Gestsdóttir komu Selfyssingum undir lok fyrri og í byrjun síðari hálfleiks.
Á þessum tímapunkti benti allt til þess að Selfoss væri að fara sækja fyrsta sigurinn í Lengjubikarnum, en leikmenn Gróttu voru með aðrar hugmyndir.
Alexandria Madden minnkaði muninn á 63. mínútu niður í tvö mörk og stundarfjórðungi fyrir leikslok gerði Birna annað mark sitt.
Tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Nicole Douglas metin og aðeins tveimur mínútum síðar var endurkoman fullkomnað er hún gerði annað mark sitt. Madden gulltryggði Gróttu sigurinn á 84. mínútu leiksins.
Hrun hjá Selfyssingum á síðasta hálftímanum sem voru að tapa fimmta leik sínum í keppninni. Grótta er í 3. sæti með 8 stig en Selfoss án stiga á botninum.
;
Lengjubikar kvenna - B-deild
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. HK | 4 | 3 | 0 | 1 | 15 - 5 | +10 | 10 |
| 2. KR | 4 | 3 | 0 | 1 | 11 - 5 | +6 | 10 |
| 3. Grótta | 5 | 2 | 1 | 2 | 17 - 16 | +1 | 8 |
| 4. Haukar | 6 | 2 | 3 | 1 | 13 - 13 | 0 | 7 |
| 5. Keflavík | 4 | 2 | 2 | 0 | 7 - 7 | 0 | 6 |
| 6. ÍA | 4 | 1 | 2 | 1 | 8 - 11 | -3 | 4 |
| 7. Selfoss | 5 | 0 | 5 | 0 | 5 - 19 | -14 | 0 |


