Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yamal fordæmir söngva spænskra stuðningsmanna
Mynd: EPA
Lamine Yamal fordæmir rasíska söngva stuðningsmanna spænska landsliðsins en þeir sungu ljóta söngva um múslima í leik Spánar gegn Egyptalandi í vikunni. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

„Ég er múslimi. Ég heyrði 'Sá sem stekkur ekki er múslimi' úr stúkunni í gær," skrifaði Yamal á Instagram.

„Ég veit að þessu var beint að andstæðingnum og það var ekki eitthvað gegn mér, en sem múslimi þá breytir það því ekki að þetta er óvirðing og á ekki að líðast.“

Spænska fótboltasambandið fordæmir einnig söngvana og spænska lögreglan er að rannsaka málið.

„Ég veit að allir stuðningsmenn eru ekki svona en til þeirra sem syngja þessa söngva: að nota trú sem grín á leikvangi lætur þig líta út fyrir að vera rasisti," skrifaði Yamal enn fremur.
Slapp
banner