Aron Sigurðarson og Hallgrímur Mar Steingrímsson eru tveir af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar. Aron hefur verið frábær fyrir KR síðustu ár og Hallgrímur Mar er líklega besti fótboltamaður í sögu KA.
Á síðustu dögum hefur Fótbolti.net rætt við stuðningsmenn liðanna í Bestu deildinni í hlaðvarpsþáttunum Niðurtalningunni.
Á síðustu dögum hefur Fótbolti.net rætt við stuðningsmenn liðanna í Bestu deildinni í hlaðvarpsþáttunum Niðurtalningunni.
Það er athyglisvert að stuðningsmenn KR og KA líktu þessum leikmönnum við sama leikmanninn úr ensku úrvalsdeildinni í þessum þáttum.
„Það er engin spurning," sagði Hilmar Örn Hafsteinsson, stuðningsmaður KR, aðspurður að því hvort Aron geti verið besti leikmaðurinn í deildinni í sumar.
„Hann er orðinn virkilega mikill KR-ingur sem gaman er að sjá. Hann blæðir svörtu og hvítu, maður sér hvernig hann talar og hvernig hann ber sig," bætti Hilmar við.
„Hann býr til eitthvað úr engu. Þetta er bara eins og Bruno í Man Utd, það gerist oft ekkert nema það fari í gegnum hann."
Bruno Fernandes hefur svolítið borið lið United á herðum sér síðustu ár og er langbesti maðurinn þar. Þannig hefur það líka verið með Aron í KR, og með Hallgrím í KA.
„Ef Grímsi er með gæðamikla leikmenn fram á við með sér, þá býr hann endalaust til. Hann er bara eins og Bruno í United," sagði Egill Sigfússon, stuðningsmaður KA.
„Hann er miklu betri 35 ára en 25 ára. Hann var ekki lélegur 25 ára en hann var ekki svona góður."
Hægt er að hlusta á báða þessa þætti í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.


