Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd að kaupa 17 ára Kólumbíumann
Mynd: EPA
Man Utd er nálægt því að ganga frá fyrstu kaupunum fyrir sumarið samkvæmt heimildum Manchester Evening News.

Félagið hefur náð samkomulagi við Cristian Orozco, 17 ára gamlan Kólumbíumann. Hann spilar sem varnarsinnaður miðjumaður.

Man Utd hefur náð samkomulagi við kólumbíska félagið og mun borga um 750 þúsund pund fyrir hann. Orozco mun ganga formlega til liðs við United þegar hann nær 18 ára aldri.

Man Utd er að vinna í því að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil en Elliot Anderson, miðjumaður Nottinham Forest, hefur verið orðaður við liðið. Man Utd og Man City eru að fylgjast með honum en Forest hefur sett 80 milljón punda verðmiða á hann.
Slapp
banner
banner