Louis Saha, fyrrum sóknarmaður Manchester United, vonast til þess að sitt gamla félag muni kaupa Jude Bellingham í sumar.
Það hefur eitthvað verið rætt og ritað um það að framtíð Bellingham hjá Real Madrid sé mögulega í óvissu og hefur United verið nefnt mest sem hans næsti áfangastaður.
Það hefur eitthvað verið rætt og ritað um það að framtíð Bellingham hjá Real Madrid sé mögulega í óvissu og hefur United verið nefnt mest sem hans næsti áfangastaður.
„Þetta eru draumakaup mín fyrir Man Utd í sumar," sagði Saha um Bellingham.
Það er þó ekki mjög raunhæft að hinn 22 ára gamli Bellingham endi á Old Trafford þó eitthvað sé slúðrað um það.
„Þetta er klikkuð hugmynd, en hann er með allt. Ég myndi elska að sjá þetta."



