Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 02. apríl 2026 15:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Kvenaboltinn
Guðni Eiríksson, þjálfari FH.
Guðni Eiríksson, þjálfari FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: RÚV/Skjáskot
FH-ingar nýttu tækifærið og bjuggu til snjókall.
FH-ingar nýttu tækifærið og bjuggu til snjókall.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Völlurinn er ekki leikfær, ég held að allir geta verið sammála um það. Vallarstarfsmenn og aðrir voru vissulega að gera sitt besta í að keyra leikinn í gang og reyna að spila hann, en það sást fljótt eftir að leikurinn hófst að hann var engan veginn leikfær. Þess vegna tók dómarinn rétta ákvörðun og flautaði hann af," sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, við Hafliða Breiðfjörð eftir að leik liðsins gegn Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ var hætt vegna aðstæðna.

Guðni sagði í viðtali fyrir leikinn, í viðtali við RÚV, að aðstæður væru óboðlegar.

Leikurinn verður spilaður á morgun, hefst klukkan 14:00 á Kópavogsvelli og leikurinn verður spilaður í heild sinni, frá fyrstu mínútu.

„Auðvitað var ég ósáttur að leikurinn var settur í gang. Það eina sem vakti fyrir mig voru leikmenn beggja liða. Við viljum ekki að leikmenn meiðist hérna stuttu fyrir mót út af aðstæðum. Það bara er ekkert í boði og það var það sem ég var ósáttur við. Það sáu það allir þegar leikmaður Breiðabliks flaug á rassgatið eftir um 20 sekúndur að þetta væri það sem koma skyldi. Við skulum ekki búa til meiðsli."

Þegar örfáar mínútur voru liðnar af leiknum ræddi Gunnar Freyr Róbertsson við þá Guðna og Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks.

„Ég sagði við hann að ef hann myndi ekki taka þessa ákvörðun þá myndi ég gera það sjálfur. Hann tók ákvörðunina og það var rétt hjá honum. Hann vildi ræða þetta við fyrirliðana fyrst, ég veit ekki hvað fór þeirra á milli."

Fyrst var ákveðið að senda leikmenn af velli og átti að reyna halda leik áfram, en að lokum var leikurinn flautaður af.

„Það var hugmynd um að seinka leiknum til klukkan 16 en þjálfarar beggja liða voru ekki til í það þar sem það er ekki gott að hita upp, verða heitur, kólna niður og fara svo aftur að hita upp. Það er ekki gott. Niðurstaðan er sú að leikurinn fer fram á morgun og við skulum vona að veðrið verði betra. Spáin er fín, en ef hún rætist ekki þá færum við okkur bara inn í Kór. Það er plan B," sagði Guðni.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Slapp
banner