Það ráku margir upp stór augu á dögunum þegar hinn 78 ára gamli Roy Hodgson var ráðinn stjóri Bristol City út tímabilið. Hann hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri liðsins eftir að Gerhard Struber var látinn fara.
Hodgson þekkir til hjá Bristol City en hann stýrði liðinu síðast árið 1982, fyrir 44 árum síðan, og var það hans annað stjórastarf á ferlinum. Hodgson hefur ekki verið í starfi frá því að hann yfirgaf Crystal Palace í febrúar 2024.

Hodgson er spenntur fyrir áskoruninni og segist vera í góðu formi þrátt fyrir aldurinn. Hann fékk blessun frá eiginkonu sinni til að taka við starfinu.
„Hún fær núna sjónvarpsfjarstýringuna út af fyrir sig," sagði Hodgson léttur.
„Ég grínaðist með það við starfsfólkinu að ég ætlaði mér ekki að deyja á bekknum. Ég vil ekki að það gerist."