Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 02. apríl 2026 14:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Flautað af á Kópavogsvelli - Spilað á morgun
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að flauta leik Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna af á Kópavogsvelli. Þetta hefur Fótbolti.net fengið staðfest. Ekki er hægt að spila leikinn vegna aðstæðna, en mikil snjókoma er á höfuðborgarsvæðinu.

Stefnt er að því að spila leikinn klukkan 14:00 á morgun og byrja leikinn aftur frá fyrstu mínútu.

Leikurinn í dag fór af stað 14:18, átján mínútum eftir að hann átti að fara af stað.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  0 FH

Fyrir leik var Guðni Eiríksson, þjálfari FH, allt annað en ánægður með að leikurinn færi fram og talaði um óboðlegar aðstæður. Um hálftíma síðar var dómari leiksins, Gunnar Freyr Róbertsson, sammála honum og flautaði leikinn af.
Slapp
banner
banner