Síðasti leikurinn í 2. umferð Mjólkurbikars karla kláraðist í kvöld er Fjölnismenn unnu dramatískan 2-1 sigur á Víði í framlengdum leik í Egilshöllinni og er því allt klár fyrir 32-liða úrslitin sem hefjast á morgun.
Fylkir og KFA mætast í fyrsta leiknum sem er spilaður á morgun klukkan 14:00.
Fram tekur á móti Íslandsmeisturum Víkings á Lambhagavellinum á laugardag og þá er stærsti leikurinn spilaður á mánudag er KR fær erkifjendur sína í Val í heimsókn.
Síðasti leikurinn fer fram 11. apríl er bikarmeistarar Vestra taka á móti Leikni á Kerecis-vellinum.
32-liða úrslitin:
Skírdagur (á morgun):
14:00 Fylkir - KFA (tekkVöllurinn)
Föstudagurinn langi:
13:00 Afturelding - Ýmir (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 Tindastóll - Njarðvík (Sauðárkróksvöllur)
Laugardagur:
12:00 ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór - FH (Boginn)
15:00 Höttur - KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt - Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)
Páskadagur (Sunnudagur):
15:00 Árbær - Ægir (Domusnovavöllurinn)
15:00 Stjarnan - Selfoss (Miðgarður)
Annar í páskum (Mánudagur):
13:00 Grindavík - Keflavík (BIRTU-völlurinn)
13:00 Fjölnir - HK
13:00 ÍA - Haukar (Akraneshöllin)
14:00 Grótta - Álftanes (Vivaldivöllurinn)
16:00 KR - Valur (Meistaravellir)
Laugardagurinn 11. apríl:
16:00 Vestri - Leiknir R. (Kerecis-völlurinn)


