Íslenska kvennalandsliðið leikur tvo mikilvæga leiki á heimavelli í undankeppni HM í þessum mánuði.
Stelpurnar okkar fá Úkraínu og Englendinga í heimsókn. Þær spiluðu við England á heimavelli Nottingham Forest á dögunum og töpuðu þar 2-0.
Stelpurnar okkar fá Úkraínu og Englendinga í heimsókn. Þær spiluðu við England á heimavelli Nottingham Forest á dögunum og töpuðu þar 2-0.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku eftir að hópurinn fyrir leikina var tilkynntur. Þar fór hann yfir síðasta verkefni og talaði meðal annars um umgjörðina í kringum leikinn við England.
„Það var alveg sérstakt að spila út á Englandi að því leytinu til að þetta var umgjörð á sama stigi og að taka þátt á lokamóti. Það var gríðarlega gott utanumhald og skipulag," sagði Steini og hélt áfram:
„Þetta voru toppgæði alla leið þó búningsklefinn í Nottingham hafi ekki verið neitt sérstakur."
„Það var áhugavert að vera þarna að þessu leyti. Umgjörðin var í hæsta klassa."

