Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   þri 31. mars 2026 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Eimskip
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: KSÍ
Gylfi á æfingu með landsliðinu í Kanada.
Gylfi á æfingu með landsliðinu í Kanada.
Mynd: KSÍ
„Svekkjandi. Að vera 1-0 yfir á 87. mínútu, það svíður að fá á sig mark í lokin," sagði Gylfi Þór Sigurðsson við Fótbolta.net eftir 1-1 jafntefli gegn Haítí í vináttulandsleik í kvöld.

„Það er fínt að fá einhverjar 80 mínútur og alltaf gaman að skora. Heilt yfir er það svipað í síðustu tveimur leikjum að við töpum niður forystunni. Það er fínt að þetta gerist í æfingaleikjum, eitthvað sem við getum skoðað og lært af."

Lestu um leikinn: Haítí 1 -  1 Ísland

„Ef við ætlum að líta á einhverja jákvæða punkta, þá er það að þetta gerist ekki í einhverri undankeppni. Við þurfum að vera klókari að loka leikjum og drepa leikinn í lokin."

Það er stór gluggi í haust og það fengu margir tækifæri núna.

„Ég held að það sé bara jákvætt að margir leikmenn þekki leikskipulagið og geti hoppað inn ef þess þarf," sagði Gylfi en hann ætlar sér auðvitað að vera með í september þegar Þjóðadeildin byrjar.

„Það er alveg sama hvern þú spyrð, hvort það sé ég eða einhver annar þá vilja allir vera í landsliðinu. Það hefur ekkert breyst hjá mér."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner