Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Woltemade svarar gagnrýni: Viðkomandi horfir ekki á marga leiki
Mynd: EPA
Nick Woltemade hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið eftir frábæra byrjun í búningi Newcastle. Hann hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína en hann hefur svarað gagnrýninni.

Woltemade gekk til liðs við Newcastle frá Stuttgart í sumar en hann var fenginn til að fylla skarð Alexander Isak sem gekk til liðs við Liverpool. Hann hefur skorað 10 mörk í 45 leikjum en hann hefur aðeins skorað eitt mark eftir áramót.

„Ef einhver heldur því fram að ég sé í lægð, þá myndi ég halda því fram að viðkomandi horfi ekki á marga leiki Newcastle," sagði Woltemade.

Eddie Howe hefur verið að spila framherjanum aftar á vellinum en hann er vanur.

„Ég veit að fólk tengir mig við mörk, en það er ekki hægt að bera saman mörk framherja við mörk miðjumanns sem spilar 50, 60, 70 metra frá marki andstæðinganna," sagði Woltemade.

„Ég er allt annar Nick Woltemade núna en ég var í byrjun tímabilsins. Eins og er ætti að dæma mig út frá því hvernig ég tekst á við einvígi eða tryggi mér pláss.“
Slapp
banner