Það er ljóst að Lúxemborg verður með okkur Íslendingum í riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Þetta varð ljóst í dag þar sem Lúxemborg fór létt með Möltu í tveggja leikja einvígi um sæti í C-deildinni.
Þetta varð ljóst í dag þar sem Lúxemborg fór létt með Möltu í tveggja leikja einvígi um sæti í C-deildinni.
Lúxemborg vann fyrri leikinn 0-2 á útivelli og kláraði svo dæmið með þægilegum 3-0 sigri í dag.
Lúxemborg var í riðli með okkur Íslendingum í undankeppni EM 2024 og þar vorum við fyrir neðan þá í riðlinum. Í tveimur leikjum náðum við í eitt stig gegn þeim.
Svona verður riðill Íslands í Þjóðadeildinni:
Ísland
Búlgaría
Eistland
Lúxemborg
Keppni í Þjóðadeildinni hefst í september.


