Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   fös 13. mars 2026 10:28
Elvar Geir Magnússon
Ýjar að því að ungstirnið byrji hjá Liverpool á næstu dögum
Rio Ngumoha.
Rio Ngumoha.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, segir að hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha sé orðinn tilbúinn að byrja fyrir Liverpool. Talið er að þessi spennandi leikmaður fái byrjunarliðsleik í allra næstu leikjum.

Slot segist bera traust til táningsins en það þurfi þó að fara varlega með þennan efnilega pilt.

„Við höfum farið varlega með hann, meðal annars til að passa að hann meiðist ekki. Leikmenn á hans aldri geta orðið fyrir álagsmeiðslum og við höfum fengið að kynnast því," segir Slot um Rio Ngumoha.

„Ég sagði fyrir mánuði síðan að hann fengi meiri spiltíma og það hefur gerst. Hann byrjaði gegn Wolves og hann kemur svo sannarlega til greina í byrjunarliðið í þeim þremur leikjum sem eru framundan. Við þurfum að spila þrjá leiki á sjö dögum. Þá þarf fleiri en ellefu leikmenn"

Liverpool fær Tottenham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag, spilar gegn Galatasaray í Meistaradeildinni á miðvikudag og leikur svo gegn Brighton í hádeginu á laugardegi þar á eftir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner