Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 17:46
Brynjar Ingi Erluson
Sveinn Aron kominn á blað - Róbert Frosti í undanúrslit bikarsins
Sveinn Aron skoraði sitt fyrsta mark fyrir Cavese
Sveinn Aron skoraði sitt fyrsta mark fyrir Cavese
Mynd: Cavese
Róbert Frosti er kominn í undanúrslit
Róbert Frosti er kominn í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Aron Guðjohnsen opnaði markareikninginn með ítalska C-deildarliðinu Cavese í 2-2 jafntefli gegn Potenza í dag. Róbert Frosti Þorkelsson er þá kominn með GAIS í undanúrslit sænska bikarsins.

Sveinn Aron, sem kom til Cavese frá Sarpsborg á dögunum, gerði fyrsta mark sitt úr vítaspyrnu á 64. mínútu og kom liðinu í 2-1 forystu en heimamenn í Ptenza jöfnuðu stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Cavese er í 14. sæti C-riðils með 35 stig eftir 32 leiki.

Róbert Frosti spilaði síðustu tuttugu mínúturnar í óvæntum 3-2 sigri á AIK í 8-liða úrslitum sænska bikarsins.

Hann hefur verið að fá mínútur inn af bekknum í bikarkeppninni í byrjun árs og hjálpaði sínum mönnum að komast í undanúrslit þar sem þeir mæta deildarmeisturum Mjällby.

Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen spiluðu báðir í 4-0 stórtapi Malmö gegn Mjällby. Arnór lék allan leikinn en Daníel kom inn af bekknum undir lok leiks. Malmö er úr leik í bikarnum.

Nóel Atli Arnórsson byrjaði hjá Álaborg sem tapaði fyrir Hobro, 1-0, í dönsku B-deildinni. Álaborg er í 9. sæti með 27 stig, tveimur stigum frá því að komast í meistarariðilinn.

Guðlaugur Victor Pálsson var í hjarta varnarinnar hjá Horsens sem gerði markalaust jafntefli við Aarhus Fremad. Ólafur Hjaltason byrjaði hjá Fremad. Horsens er í 5. sæti með 30 stig en Fremad í 8. sæti með 27 stig.

Viðar Ari Jónsson kom inn af bekknum hjá Ham/Kam sem vann 2-1 sigur á Viking í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Hilmir Rafn Mikaelsson byrjaði hjá Viking en var tekinn af velli á 70. mínútu.

Eyþór Martin Björgólfsson lék síðustu fimmtán mínúturnar í 3-1 tapi Motherwell gegn Celtic í skosku úrvalsdeildinni. Celtic er í öðru sæti deildarinnar með 61 stig en Motherwell í 4. sæti með 53 stig.

Hólmbert Aron Friðjónsson lék síðari hálfleikinn með Gwangju sem gerði markalaust jafntefli við Jeonbuk í suður-kóresku úrvalsdeildinni. Gwangju er í efsta sæti deildarinnar með fimm stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir
banner